Skagaleikflokkurinn

Skagaleikflokkurinn var stofnaður árið 1974 en fram til þess tíma hafði Leikfélag Akraness haldið uppi öflugu starfi, sem reyndar átti undir högg að sækja með tilkomu sjónvarpsútsendinga á sjöunda áratug síðustu aldar. Skagaleikflokkurinn hefur í gegnum tíðina sett upp margar metnaðarfullar sýningar og tekið virkan þátt í ýmsum viðburðum á Akranesi. Nægir þar að nefna hið litglaða götuleikhús sem alltaf er áberandi á Írskum dögum á Akranesi.  

Stjórn leikfélagsins Skagaleikflokkurinn skipa Sigtryggur Karlsson, formaður, Guðbjörg Árnadóttir, Gunnar Sturla Hervarsson og Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir.

Bandalag íslenskra leikfélaga eru samtök áhugaleikfélaga um allt land. Leikfélagið Skagaleikflokkurinn er eitt þeirra.

Hafa má sambandi við formanninn Sigtrygg via fotaskinn@gmail.com