Morgunblaðið, laugardaginn 4. júní, 1994
Skagaleikflokkurinn siglir utan!
SKAGALEIKFLOKKURINN á Akranesi æfir nú að nýju leikritið “Alltaf má fá annað skip” eftir Kristján Kristjánsson. Flokkurinn hefur verið valin til að taka þátt í leiklistarhátíð norrænna og baltneskra áhugaleikfélaga fyrir hönd Íslands síðar í þessum mánuði.
Leiklistarhátíðin er haldin í Tönder í Danmörku, en það er vinabær Akraness. Að hátíðinni standa samtök áhugaleikfélaga á Norðurlöndum, NAR og er hún haldin á þriggja ára fresti. Undirbúningur leikflokksins hefur staðið nokkra mánuði.
Leikritið, sem er fyrsta verk höfundarins og jafnframt frumraun hans sem leikstjóra, var sýnt á síðasta ári á Akranesi og víðar. Það gerist um borð í dagróðrabáti og fjallar um samskipti sjómanna í lúkarnum.
Einn þáttur í undirbúningi utanfararinnar er tvær sýningar á verkinu á Akranesi, 3. og 4. júní, í samvinnu við sjómannadagsráð. Þessar sýningar eru hluti af hátíðarhöldum sjómannadagsins á Akranesi. Verkið hefur verið sviðsett upp á nýtt í styttri og endurunninni útgáfu vegna leikferðarinnar. Sýningarnar fara fram í Bíóhöllinni og hefjast báða dagana kl. 20.30.
- Jón Gunnlaugsson

