Leikstjórinn

Þröstur Guðbjartsson er leikstjóri sýningarinnar Fiskar á þurru landi sem Skagaleikflokkurinn setur upp haustið 2010.

Þröstur hefur unnið með áhugaleikhúsum víða um land með dæmafáum árangri.  Honum er einstaklega lagið að ná því besta út úr misreyndum áhugaleikurum og þeim aðstæðum sem hann vinnur við á hverjum tíma. Það er því mikill fengur fyrir Skagaleikflokkinn að fá að njóta reynslu hans og hæfileika í verkinu Fiskar á þurru landi.

Þröstur eða „Dösti“ eins og hann er kallaður í kunningjahópi er Vestfirðingur að ætt og uppruna, fæddur og uppalinn í Bolungarvík þar sem hann steig sín fyrstu spor á leiksviði sjö ára gamall. Þröstur segist muna vel eftir þeirri upplifun og hefur hún efalaust verið grunnurinn að leiklistaráhuga hans og leikstjóraferli.

Formleg leið hans inn í leiklistarheiminn var í gegnum leiklistarskóla SÁL árið 1974 og ári síðar innritaðist hann í hinn nýstofnaða Leiklistarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 1978.  Þröstur hefur aldrei verið fastráðinn við leikhús, en leiklistin samt sem áður alltaf verið hans aðalstarf. Hann hefur, auk þess að leikstýra vítt um landið, starfað við alla miðla leiklistarinnar, svo sem leikhús, kvikmyndir, sjónvarp og fleira.

Leiklistarferill hans hófst árið 1980 og hefur hann starfað við leiklist nánast óslitið síðan. Minna má Skagamenn á að hann leikstýrði ógleymanlegum uppfærslum FVA á Blóðbræðrum, Láttu ekki deigan síga Guðmundur og Þrettándakvöldi.  Þar lágu leiðir hans og Guðmundar Claxtons og Gunnars Sturlu saman á sínum tíma og árangur þess samstarfs lofar engu nema góðu í Fiskum á þurru landi.

ÞRÖSTUR GUÐBJARTSSON hefur unnið með áhugaleikhúsum víða um land með dæmafáum árangri.  Honum er einstaklega lagið að ná því besta út úr misreyndum áhugaleikurum og þeim aðstæðum sem hann vinnur við á hverjum tíma. Það er því mikill fengur fyrir Skagaleikflokkinn að fá að njóta reynslu hans og hæfileika í verkinu Fiskar á þurru landi.