Til hamingju! Skagaleikflokkurinn er upprisinn. Eftir nokkurra ára hlé hefur leikflokkurinn nú hafið starfsemi að nýju og hlýtur að vera öllum gleðiefni að svo ágæt menningarstarfsemi skuli vöknuð til lífsins. Ný stjórn hefur verið mynduð með nýju fólki, blanda ungra og eldri, sem hefur metnað og löngun til öflugrar starfsemi.
Stærstur hluti af starfsörðugleikum leikflokksins er að hann hefur enga fasta aðstöðu til starfsemi sinnar. Þetta er vandamál sem nauðsynlegt er að leysa svo leikhússtarf og leiklistaruppeldi geti þrifist á Akranesi. Stefnan leikflokksins er að hann verði ekki aðeins einnar sýningar leikhús á ári hverju heldur eitthvað meira. Því er hugmyndin að koma af stað nokkurskonar leiksmiðju seinni partinn í nóvember og sýna afurðir hennar í janúar til febrúar. Er æskilegt að ungir sem aldnir komi til þeirra verka með okkur og taki þátt í smíði og samningu leikverks sem alfarið yrði þeirra sjálfra. Einnig hefur leikflokkurinn áhuga á að taka upp aukið samstarf við nemendur Fjölbrautarskólans og ef til vill fleiri til að nýta sem best húsnæði og leikkrafta á sem fjölbreyttastan hátt.
Reynslan hefur sýnt að minni bæjarfélög en Akranes hafa burði til að halda úti öflugri leikhússtarfsemi sem vakið hefur athygli víða um land. Má þar til nefna Leikfélag Húsavíkur sem dæmi. Vonandi ber okkur Akurnesingum gæfa til að taka myndarlega á í þessum efnum. Því hvað er betra til að lyfta sér upp úr bosi hversdagsins en fara í leikhús sér til skemmtunar og uppbyggingar. Já eða taka þátt í starfinu.
Með kærri kveðju,
Sigtryggur Karlsson